Brynvarin og fílelfd...

... mættu þau Soffía Vagnsdóttir, Gunnar Hallsson og Jóhann Hannibalsson á Höfðastíginn í kvöld og tóku við spurningum frá afar vel sóttum fundi varðandi hinn mikla fjármála "viðsnúning," sem hefur verið tíðrætt um að undanförnu, m.a á vef Bæjarins Besta á Ísafirði. Þau gáfu fólki það sjálfsagða tækifæri að spyrja þau spjörunum úr um meint umsvif Soffíu á þeim tíma sem uppúr slitnaði í samstarfi A-listans og Bæjarmálafélaginu, framkvæmdirnar á Félagsheimilinu, sundlaugargarðinn, Vatnsveituframkvæmdirnar, peningamálin og hvernig á því stæði að meirihlutasamstarf þeirra hafi fengið á sig stimpil "óreiðu og fjármálasukks."

Fólk var ófeimið við að spyrja og skópust mjög líflegar umræður á fundinum sem var í alla staði verulega fræðandi og gagnlegur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband